• *
    *
    *
    *
    *
    Fields marked with an asterisk (*) are required.
Þú er hér: Heima Félagið Íþróttaskóli og sumarnámskeið Íþróttaskóli Árbæjarskóla

Íþróttaskóli Árbæjarskóla

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Nú í vetur 2009-2010 verður starfræktur íþróttaskóli Fylkis fyrir börn í fyrsta bekk í Árbæjarskóla.

 

Skólinn er styrktur af Íþróttabandalagi Reykjavíkur og er því ókeypis.

Skólinn hefst í september og verður tvisvar sinnum í viku á fimmtudögum og föstudögum. Vegna fjölda þarf að skipta í tvo hópa og mun annar hópurinn vera kl. 13:30-14:10 og hinn 14:10-14:50.

 

 

Skólinn helst í hendur við skóladagtal skólans hvað varðar frí. Kennt er í íþróttasal skólans og skulu þátttakendur taka með sér íþróttaföt (bol, stuttbuxur eða síðar íþróttabuxur og innanhússkó). Ekki verður farið í sturtu eftir tímana.

Boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá þar sem mismunandi íþróttagreinar eru kynntar fyrir nemendum.

 

Kennari er Bergþór Stefánsson 695-0917.

Umsjónarmaður íþróttaskólans er Hörður Guðjónsson Íþróttafulltrúi Fylkis:

s. 567-6467

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

www.fylkir.com