• *
    *
    *
    *
    *
    Fields marked with an asterisk (*) are required.
Þú er hér: Heima Félagið Íþróttaskóli Íþróttaskóli Fylkis sumarið 2009

Íþróttaskóli Fylkis sumarið 2009

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Skráning er hafin í Fylkishöll

 

Íþróttafélagið Fylkir mun bjóða upp á Íþróttaskóla næsta sumar. Skólinn er fyrir krakka á aldrinum 5 ára (f. 2004) til og með 12 ára (f. 1997) og verður hann starfandi á glæsilegu íþróttasvæði Fylkis í Árbænum.

 

Hér er um að ræða fjögur tveggja vikna námskeið alla virka daga frá kl. 09.00–15.00. Boðið er upp á að taka eina viku og einnig er hægt að vera hálfan dag, kl. 09.00–12.00 eða kl. 12.00–15.00. Hægt að skrá þátttakendur í gæslu frá kl. 08.00–16.00.

 

Lögð er sérstök áhersla á þær íþróttagreinar sem eru hjá félaginu: Handknattleik, blak, knattspyrnu, fimleika og karate. Ásamt því er farið í fleiri íþróttagreinar, leiki, heimsóknir og ævintýraferðir í næsta nágrenni sem er ein mesta útivistarperla borgarinnar.

 

NÁMSKEIÐ Í BOÐI

Námskeið 1 / 8. júní–19. júní*

Námskeið 2 / 22. júní–3. júlí

Námskeið 3 / 6. júlí–17. júlí

Námskeið 4 / 4. ágúst–14. ágúst

 

*Frí 17. júní

 

SKRÁNING OG VERÐ

Skráning á námskeiðin er hafin og fer fram í Fylkishöllinni ( 567-6467 ). Innifalin í námskeiðsgjaldi er gæsla frá kl. 08.00 og til kl. 16.00 eftir að námskeiði lýkur.

 

Velferðarsjóður barna styrkir Íþróttaskóla Fylkis.

 

Tveggja vikna námskeið allan daginn 6.000 kr

Tveggja vikna námskeið hálfan daginn 3.000 kr

Viku námskeið allan daginn 3.000 kr

Viku námskeið hálfan daginn 1.500 kr

 

Systkinaafláttur -1.000 kr 5.000 kr

Þriðja systkinið -2.000 kr 4.000 kr

 

Fjórða systkinið -3.000 kr 3.000 kr