Nú í vetur 2009 - 2010 verður starfræktur íþróttaskóli Fylkis fyrir börn í fyrsta bekk í Selásskóla.
Skólinn er styrktur af Íþróttabandalagi Reykjavíkur og er því ókeypis.
Skólinn hefst 4. septembers og verður tvisvar sinnum í viku:
Hópur 1 á mánud. og fimmtud. Kl. 13.30-14.10.
Hópur 2 á mánud. og fimmtud. Kl. 14.10-14.50.
Skólinn helst í hendur við skóladagtal skólans hvað varðar frí. Kennt er í íþróttasal skólans og skulu þátttakendur taka með sér íþróttaföt (bol, stuttbuxur eða síðar íþróttabuxur og innanhússkó). Ekki verður farið í sturtu eftir tímana.
Boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá þar sem mismunandi íþróttagreinar eru kynntar fyrir nemendum þannig að þeir eigi auðveldara með að velja íþrótt til að stunda í framtíðinni. Lögð er sérstök áhersla á þær greinar sem eru starfandi innan Fylkis.
Fylgt er stefnu ÍSÍ í barna og unglingaþjálfun þar sem minni áhersla er lögð á harða keppni en meiri áhersla á leik og samvinnu.
Kennari er Stefanía sem er íþróttakennari í Selásskóla.
Umsjónarmaður íþróttaskólans er Hörður Guðjónsson Íþróttafulltrúi Fylkis s.567-6467.


