• *
    *
    *
    *
    *
    Fields marked with an asterisk (*) are required.
Þú er hér: Heima Félagið Íþróttaskóli Knattspyrnuskóli Fylkis

Knattspyrnuskóli Fylkis

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Knattspyrnuskóli Fylkis verður starfræktur í sumar eins og undanfarin sumur en nú eru námskeiðin opin öllum iðkendum á aldrinum 6-14 ára, bæði piltum og stúlkum. Um er að ræða vikunámskeið, virka daga frá kl. 9-12. Á námskeiðunum sjálfum verður iðkendum skipt upp eftir aldri, getu og kyni þannig að allir fái verkefni við sitt hæfi.

 

Námskeiðin sumarið 2009:

 

15. júní -Vikunámskeið

22. júní -Vikunámskeið

29. júní -Vikunámskeið

6. júlí -Vikunámskeið

13. júlí -Vikunámskeið

20. júlí -Vikunámskeið

3. ágúst -Vikunámskeið (EM Stúlku þema)

10. ágúst -Vikunámskeið (EM Stúlku þema)

17. ágúst -Vikunámskeið (EM Stúlku þema)

 

Þrjú námskeið eru sérstaklega sett upp í tilefni af EM kvenna 2009. Landsliðsstelpurnar koma í heimsókn á öll þau námskeið. EM námskeiðin eru bæði ætluð drengjum og stúlkum eins og öll önnur námskeið sumarsins. Á önnur námskeið koma einnig góðir gestir og spjalla við iðkendur. Umsjón með skólanum hafa sömu þjálfarar og í fyrra eða Jakob Leó Bjarnason og Aðalsteinn Sverrisson þjálfarar 5. og 6. flokks drengja.

 

Á öllum námskeiðunum verða hinar sívinsælu knattþrautir, fótboltagolf og ýmsar keppnir.

 

Bloggsíða verður starfrækt í kringum skólann þar sem iðkendur geta fylgst með eigin niðurstöðum úr knattþrautum og öðrum keppnum ásamt því að skoða myndir úr skólanum. Slóð á bloggsíðu skólans er: www.fotboltaskoli.bloggar.is

 

Allir iðkendur fá bol merktan knattspyrnuskóla Fylkis 2009 á sínu fyrsta námskeiði. Pylsupartý verður í lok hvers námskeiðs.

0

Ef að iðkendur missa út dag eða daga á einhverju námskeiði vegna keppnisferða eða annarra ferða er þeim boðið að koma á næsta námskeið og vera þann tíma sem þeir höfðu misst úr.

 

Við hvetjum pilta og stúlkur til þess að mæta á námskeið sumarsins enda alltaf gleði og gott veður á Fylkisvelli. Skráning hefst mánudaginn 11. maí í Fylkishöllinni.

 

Verð: kr. 7500.- pr viku. Ef iðkandi fer á fleiri en tvö námskeið, er verðið kr. 5000 fyrir þriðja námskeiðið og áfram...