• *
    *
    *
    *
    *
    Fields marked with an asterisk (*) are required.
Þú er hér: Heima Félagið Sportklúbbur Árbæjar

Sportklúbbur Árbæjar 2009-2010

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Íþróttafélagið Fylkir ásamt félagsmiðstöðinni Árseli ætla í vetur að bjóða unglingum í 8. – 10.bekk að taka þátt í skemmtilegu starfi. Um er að ræða íþrótta- og tómstundahóp sem hittist tvisvar sinnum í viku. Þátttakendum stendur til boða að  mæta í íþróttahús Árbæjarskóla einu sinni í viku þar sem boðið verður upp á innanhúss íþróttir. Síðan er boðið upp á tíma einu sinni í viku í Árseli þar sem hægt verður að spila pool, hlusta á tónlist, horfa á DVD og fleira skemmtilegt.

 

Miðvikudagar kl. 15:10 – 16:10 í íþróttahúsi Árbæjarskóla ( 8. bekkur )

Miðvikudagar kl. 16:10 – 17:10 í íþróttahúsi Árbæjarskóla ( 9. og 10.  bekkur )

Fimmtudagar kl. 20:00 – 22:00 í Árseli ( Allir )

 

Þeir sem verða í hópnum geta svo tekið þátt í að ákveða hvað verður gert í þeim tímum sem við höfum til umráða.

Fótbolti

Körfubolti

Handbolti

Bandý

Badminton

Tónlist

Pool

Ofl. (Mögulega keila, lasertag, bíó oþh)

 

Til þess að vera hluti af þessum hóp þarf að mæta í einn af ofangreindum tímum og skrá sig.

Ekkert kostar að taka þátt.

Ekki er skylda að mæta í alla tímana.

 

Umsjónarmaður er Hörður Guðjónsson, sími 861-3317

 

Síðast uppfært ( Fimmtudagur, 05. nóvember 2009 15:58 )