Club Orange var stofnað árið 2000 eftir að þrengdist í Korthafa – kaffinu.
Eftir því sem best er vitað byrjaði Ársmiðakerfið í núverandi mynd árið 1994.
Þá fylgdi frítt kaffi ársmiðanum en grunnhugmyndin var að fá félagsmenn til að greiða inní félagið ríflegan aðgangseyrir og fá hlunnindi í staðinn. Þannig gátu menn styrkt klúbbinn.
Eftir að Fylkishöll opnaði haustið 1995 færðust veitingarnar úr gamla félagsheimilinu uppí austurendann þar sem Árbæjarþrek er í dag. 1998 var austurendinn stúkaður af frá “hátíðarsalnum” sem þá var einn opinn geymur.
Veturinn 2000 er salurinn stúkaður af fyrir tónlistarskólann og Árbæjarþrek og settur í núverandi mynd.
Við þær breytingar korthafa kaffið í “hættu”. Salurinn í núverandi mynd rúmar ekki alla korthafa og því komu tveir kostir til greina. Annað hvort að hætta með veitingarnar eða selja inn. Á sama tíma var meistaraflokkur karla að fara að spila í efstu deild eftir nokkurt hlé. Kortin höfðu ekki hækkað frá upphafi og voru þá á eðlilegu verði. Þ.e. að miðaverð á alla leiki var álíka og kortaverðin.
Því var tekin ákvörðun um að selja inní kaffið sérstaklega í stað þess að hækka verðið á Ársmiðunum.
Þessari aðgerð var gefið nafnið Club Orange.
Fyrsti formaður Club Orange var Pétur Stefánsson. Jóhann Kjartansson stýrði málum 2003-2006. Lína var formaður 2007 eða þar til Sigrún Jónsdóttir tók við keflinu. Hefur hún stýrt veitingum síðan með dyggri aðstoð fjölda aðstoðarmanna.
Fjöldinn allur af starfsfólki hefur lagt klúbbnum lið í sjálfboðavinnu í gegnum árin.
2009 var ákveðið að gera þær breytingar á CO sem á þessari síðu eru kynntar og mun Sigrún stýra þeirri framkvæmd.









